Gott veðurútlit fyrir páskana

Spennt að vita hvernig veðrið verður um páskana?

Ef skyggnst er fram í næstu viku og 10 daga veðurspár skoðaðar á netinu má sjá (með öllum fyrirvörum um spágæði svona langt fram í tímann) að útlit er fyrir tiltölulega óbreytt veður alla vikuna og um páskahelgina á landinu.

Spárnar sýna að bjart hæglætisveður gæti haldið áfram á höfuðborgarsvæðinu, hiti verði á bilinu 2 til 5 stig yfir daginn og töluvert næturfrost.

Það er semsagt stórfínt skíða- og útivistarveður í kortunum eins og spárnar líta út núna, en rétt að taka þær samt með fullum fyrirvara.