Forsætisráðuneytið og kvenréttindafélag íslands undirrita samning

Forsætisráðuneytið og Kvenréttindafélag Íslands hafa gert með sér samning um að félagið sinni fræðslu, námskeiðshaldi og upplýsingagjöf um jafnrétti kynjanna á innlendum og erlendum vettvangi. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður stjórnar Kvenréttindafélagsins, undirrituðu samning þessa efnis. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

„Kvenréttindafélagið hefur gegnt afar mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi í rúma öld. Við vitum að þekking er mikilvægasta tækið til að takast á við kynjakerfið og þess vegna skiptir miklu að rótgróið félag eins og Kvenréttindafélagið hafi tök á að sinna fræðslu- og upplýsingamálum,“ segir forsætisráðherra. 

Í tilkynningunni er greint frá því að meginmarkmið samningsins sé að efla fræðslu fyrir almenning um kynjajafnréttismál í samræmi við markmið laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Samkvæmt samningnum skal Kvenréttindafélagið sinna árlegri útgáfu tímaritsins 19. júní, opnum fundum, útgáfu námsefnis um jafnréttismál á rafrænu formi eða prenti og með gerð upplýsingaefnis á íslensku og ensku til birtingar á vefsvæði félagsins.

Samningurinn gildir frá 15. febrúar 2019 til 15. febrúar 2020 og greiðir forsætisráðuneytið Kvenréttindafélaginu 10 milljónir króna til að sinna þeim verkþáttum sem samningurinn tekur til.