„er það bara ég sem skil ekkert lengur í vg?“

„Formaður atvinnuveganefndar Lilja Rafney Magnúsdóttir var að mæla fyrir tillögum meiri hlutans um veiðigjöld. Lækkunin á milli ára verður tæpir 4 milljarðar. Lilja kallar það frjálshyggju að vilja tímabundna samninga og endurúthluta eða bjóða út 1/20 af kvótanum á hverju ári til að freista þess að fá hærra verð og gefa möguleika á nýliðun. Og leyfa landshlutunum sem borið hafa kostnaðinn af framsali og hagræðingu í greininni njóta arðsins með því að styrkja sóknaráætlanir landshlutana. En vinstri pólitík að hafa veiðigjaldið sem alla lægst og færa þeim sem fyrir eru á fleti kvótann um ókomna tíð. Er það bara ég sem skil ekkert lengur í Vg?“

 Nánar á

http://www.midjan.is/er-thad-bara-eg-sem-skil-ekkert-lengur-vg/