Enn ein skóla-skotárásin. tíu látnir

Tíu eru látnir eftir skotárás í skóla í Santa Fe í Texas í Bandaríkjunum í dag. Skothríðin hófst þegar nemendur voru að koma í skólann rétt fyrir klukkan átta að staðartíma.

Haft er eftir lögreglustjóranum á staðnum að 10 séu látnir, þar af níu nemendur og einn kennari við skólann.

Nemandi við skólann er grunaður um skotárásina og er í haldi lögreglu og einn annar er í yfirheyrslu.

Lögregla mun líka hafa fundið sprengiefni í skólanum og næsta nágrenni hans og íbúar voru beðnir um að skima eftir grunsamlegum hlutum.

Nemandinn sem er í haldi skat bæði á nemendur og starfsfólk skólans. Einn lögreglumaður særðist í árásinni.