Efnahagsmálin næst á dagskrá

Efnahagsmálin verða til umfjöllunnar í kosningasjónvarpi Þjóðbrautar annað kvöld. Þau er mikilsvirði og einmitt þar skarast hinar oft hinar pólitísku línur.

Til að ræða efnahagsmálin koma Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokki og Oddný Harðardóttir Samfylkingu, en bæði eiga þau sæti í fjárlaganefnd Alþingis. Að auki verður í umræðunum Gylfi Ólafsson í Viðreisn, en hann er hagfræðingur að mennt.

Sem fyrr er búist vipð uypplýsandi og fjörugum umræðum.

Þjóðbraut er á dagskrá klukkan 21:00 annað kvöld.