Búast við umferðartöfum á höfuðborgarsvæðinu í allan dag

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að búast megi við tímabundnum umferðartöfum hér og þar á höfuðborgarsvæðinu í allan dag vegna opinberra heimsókna sem nú standa yfir. Lögreglan tekur ekki fram hvar tafirnar munu eiga sér stað, né klukkan hvað þær verða. Biður lögreglan vegfarendur um að sýna þolinmæði og tillitssemi á meðan. 

Ástæða þessara tafa er vegna heimsóknar ráðherra Norðurlandanna hér til lands ásamt heimsókn Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, til landsins.