Björk verður amma

Sindri Eldon, tónlistarmaður og sonur Bjarkar Guðmundsdóttur á von á sínu fyrsta barni með eiginkonu sinni Morgan Johnson.

Sindri sagði frá þessu á Instagram síðu sinni á þjóðhátíðardaginn og á feðradaginn ytra í Bandaríkjunum þar sem Sindri er búsettur í Seattle.

Sindri er sonur Bjarkar og Þórs Eldon gítarleikara sem lék með Sykurmolunum. Hann hefur fetað tónlistarbrautina líkt og foreldrarnir og hefur starfaði um langa hríð sem blaðamaður Reykjavik Grapewine. 

\"\"