Biðlistar eftir hjúkrunarrýmum lengjast enn - biðtími eykst

Embætti landlæknis hefur sent frá sér greinargerð fyrir árið 2018 með upplýsingum um biðlista, biðtíma, lengd búsetu og fyrirhugaða uppbyggingu hjúkrunarrýma. Í greinargerðinni er lýst yfir áhyggjum vegna þess að biðlistar og þ.a.l. biðtími eftir hjúkrunarrýmum heldur áfram að lengjast.

Þar segir að um áramótin 2018/2019 voru 395 einstaklingar á biðlista eftir varanlegri dvöl í hjúkrunarrými, sem jafngildir 31,7 af hverjum 1.000 íbúum 80 ára og eldri. Fimm árum fyrr var samsvarandi hlutfall einstaklinga á biðlista 23 af hverjum 1.000 íbúum 80 ára og eldri. 

Einnig kemur fram að lengri biðlistar hafa leitt til lengri biðtíma. Árið 2014 biðu 26 prósent þeirra sem fengu hjúkrunarrými lengur en 90 daga eftir rými en árið 2018 biðu 42 prósent lengur en 90 daga. 

„Löng bið eftir hjúkrunarrýmum er verulegt áhyggjuefni sem endurspeglast meðal annars í fjölda einstaklinga sem bíða eftir varanlegri dvöl á hjúkrunarheimili á Landspítalanum. Jákvætt er þó að þeim einstaklingum sem eru með gilt færni- og heilsumat og bíða eftir að komast í varanleg úrræði utan spítalans virðist hafa fækkað síðan í desember,“ segir í greinargerðinni.

Að lokum eru áhyggjur vegna stöðunnar ítrekaðar: „Embætti landlæknis lýsir eins og áður yfir áhyggjum af stöðunni og þeim áhrifum sem löng bið eftir hjúkrunarrýmum getur haft, bæði á lífsgæði þeirra sem bíða svo og heilbrigðiskerfið. Vonir standa til að áætluð opnun hjúkrunarrýma á næstu misserum muni bæta ástandið. Þá er brýnt að efla heimahjúkrun og stuðla að heilsueflingu eldri borgara.“