Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins verður formaður umhverfis- og samgöngunefndar. Fundinum lauk nú fyrir stundu. Fréttablaðið greinir frá.
Bergþór hlaut aðeins tvö atkvæði en aðeins tveir tóku þátt í kosningunni. Bergþór sjálfur og Karl Gauti Hjaltason sem einnig er þingmaður Miðflokksins. Aðrir sátu hjá.
Atkvæðagreiðslu var frestað í gær eftir að Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, stakk uppá að Karl Gauti yrði frekar formaður en Bergþór. Enginn í minnihlutanum vildi að Bergþór tæki embættið að sér vegna hegðunar hans á Klausturbar.
Björn Leví sagði í gær:
„Ég er persónulega að segja að mér finnst að Bergþór eigi ekki að vera formaður en ég virði samkomulagið alveg. Fyrst að það er annar Miðflokksmaður í nefndinni finnst mér frekar að hann eigi að vera formaður. Þannig ég stakk frekar upp á Karli Gauta enda er hann mjög hæfur í þetta.“