Ási: eiga allir að vera 101 rottur?

Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, segir mikilvægt fyrir þingmenn á landsbyggðinni að geta heimsótt fólk í sínum kjördæmum. Hann spyr hvort fólk vilji að allir þingmenn séu „101-rottur“.
 
Hann var gestur Kastljóssins í gærkvöld og fór stórum eftir þá gagnrýni sem hann hefur sætt fyrir að fara ekki að reglum þingsins og leigja sér bílaleigubíl þegar aksturinn fer yfir 15.000 kílómetra á ári. Á síðasta ári ók hann 47.000 kílómetra í starfi sínu sem þingmaður og fékk 4.600.000 krónur frá Alþingi vegna kostnaðar við aksturinn, eins og fram kemur í fregn ruv.is af málinu.
 

\"Viljum við hafa þingmenn á landsbyggðinni,\" spurði þingmaðurinn í viðtalinu og hélt áfram: \"Viljum við hafa þingmenn sem búa austur á fjörðum eða á Norðurlandi sem sækja þingið og gera þeim kleift að búa heima hjá sér eða viljum við bara að allir séu 101-rottur?“ mælti Ásmundur í Kastljósi og sagði marga þingmenn á landsbyggðinni geta nýtt flug í ferðum sínum. Þeir fái líka húsastyrk í Reykjavík. Þingmenn á landsbyggðinni þurfi að hitta fólkið í kjördæminu alltaf en ekki aðeins á meðan kosningabarátta stendur yfir. 

Töluvert hefur verið fjallað um akstursgreiðslur til Ásmundar í fjölmiðlum eftir að þær voru gerðar opinberar á dögunum. Hann telur fjölmiðla ekki hafa gætt sanngirni í umfjöllun um málið: \"Ég verð að segja eins og er að það er nú gengið nokkuð nærri manni með þetta. Fólk segir við mann að þetta sér miklu líkara einelti heldur en fréttaflutningi.“ 

Ásmundur segist hafa reynt að leigja Alþingi bifreið sína en hugmyndin hafi ekki hlotið hljómgrunn hjá skrifstofu þingsins. Hann segist ekki sætta sig við reglu um að alþingismenn taki bílaleigubíla þegar þeir hafa ekið 15.000 kílómetra. Hann segir að bílaleigubílarnir séu útkeyrðir og ekki góðir. Nú sé þó til skoðunar hjá forsætisnefnd þingsins að þingmenn geti leigt þá bíla sem þeir vilji, segir hann í frétt ríkismiðilsins.