Alþingi fékk rangar upplýsingar um nauðungarsölur – yfir 6.500 sölur vantaldar

Hagsmunasamtök heimilanna segja hluta upplýsinga sem er að finna í svari Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur dómsmálaráðherra við fyrirspurn Ólafs Ísleifssonar þingmanns Miðflokksins um nauðungarsölur, fjárnám og gjaldþrot hjá einstaklingum árið 2018, vera rangar. Svarið birtist á vef Alþingis þann 31. maí síðastliðinn.

„Í svarinu sem unnið er af Þjóðskrá, eru birtar tölur yfir árin 2008 - 2018 sem eru því miður rangar hvað varðar nauðungarsölur og koma alls ekki heim og saman við upplýsingar sem aflað var beint frá embættum sýslumanna samkvæmt svari við sambærilegri fyrirspurn 15. ágúst 2018,“ segir í tilkynningu frá HH.

Vísað er til þess að því hafi verið slegið upp í fjölmiðlum að nauðungarsölur hjá einstaklingum hafi einungis verið 69 árið 2018 samkvæmt tölum. Þetta telja samtökin algjörlega fráleitt og benda á að einföld talning á vef sýslumanna leiði í ljós að 446 framhaldsuppboð hafi verið auglýst árið 2018. „Það er því ljóst að eitthvað hefur farið verulega úrskeiðis við úrvinnslu Þjóðskrár.“

Yfir 6.500 nauðungarsölur vantaldar

Fram kemur að samanburður á svörum Sigríðar Á. Andersen í fyrra og Þórdísar Kolbrúnar í þarsíðustu viku sýni að í tölum þessara ára séu yfir 6.500 nauðungarsölur vantaldar í gögnum Þjóðskrár. „Svo dæmi sé tekið voru nauðungarsölur flestar árið 2010 eða 1.574 talsins samkvæmt upplýsingum frá sýslumannsembættunum sjálfum, en samkvæmt tölum Þjóðskrár eru þær sagðar hafa verið einungis 13 það ár.“

HH segja þó aðrar tölur í svari Þórdísar Kolbrúnar samræmast fyrri upplýsingum. Samkvæmt þeim hefur lítið dregið úr fjárnámum hjá einstaklingum sem voru yfir tólf þúsund árið 2018 og þar af hátt í tíu þúsund árangurslaus. Á tímabilinu 2008-2018 voru því samtals gerð um 164.000 fjárnám og þar af um 127.000 árangurslaus. Jafnframt er ekkert lát á gjaldþrotum einstaklinga sem voru 312 árið 2018 og fjölgaði um 22 frá fyrra ári, en samtals hafa 3.284 einstaklingar orðið gjaldþrota á tímabilinu.

„Þessar tölur ættu að fá alla til að staldra við. Það er ekkert eðlilegt við tölur af þessari stærðargráðu í 350.000 manna samfélagi. Hér hefur eitthvað farið stórkostlega úrskeiðis!“ segir í tilkynningunni.

Að lokum segjast samtökin harma þau mistök sem hljóta að hafa orðið við samantekt Þjóðskrár varðandi nauðungarsölur og að þau hafi farið fram á leiðréttingu frá stofnuninni. Auk þess beina HH því til dómsmálaráðherra að sjá til þess að Alþingi fái réttar upplýsingar um nauðungarsölur sem fyrst.