450 milljónir í smáhýsi fyrir utangarðsfólk

Fjölga á smáhýsum fyrir utangarðsfólk í Reykjavík. Borgarráð hefur samþykkt að auka stuðning við Félagsbústaði vegna kaupa og uppbyggingar á félagslegu leiguhúsnæði og þar að auki fjölga smáhýsum fyrir utangarðsfólk.
 
Borgarsjóður mun veita sérstök fjárframlög til að byggja fleiri leiguíbúðir umfram það sem þegar er gert, bæði að hálfu ríkis og borgar. 
Stuðningurinn gildir afturvirkt frá 1. janúar 2018 og felur í sér 50 til 75 milljón króna hækkun á framlögum til uppbyggingar félagslegs húsnæðis. 
Ákveðið var að biðla til ráðherra um að afnema fjármagnstekjuskatt af lánum sem borgarsjóður veitir Félagsbústöðum ehf.
Á þessu ári er gert ráð fyrir að leiguíbúðum Félagsbústaða fjölgi um 100 íbúðir.
 
 Einnig var samþykkt í borgarráði að verja 450 milljónum til að kaupa allt að 25 smáhýsi, sem verða tengd við veitukerfi. Verið er að kanna slík smáhýsi og lóðir sem hentað gætu fyrir þau. Kaup af slíkum smáhýsum falla að skaðaminnkunarverkefninu „Húsnæði fyrst (Housing first)“ og er liður í aðgerðaráætlun í málefnum utangarðsfólks.