Rúv stundar blekkingar í nafni rannsóknarblaðamennsku

Rannsóknarblaðamennska er stórt orð. En - ekki allir vita hvað það merkir. Verst er þegar þeir sem sett hafa sjálfir á sig stimpil rannsóknarblaðamennskunnar þekkja alls ekki sjálfir hvað rannsóknarblaðamennska er. Þetta kom skýrt í ljós þegar Kveikur var sendur út í gær, 9. október. Þar kom í ljós að RÚV hafði sent Sigríði Halldórsdóttur (væntanlega \"rannsóknarblaðamann\" Kveiks?) til Nevada í Bandaríkjunum og myndatökumann með henni.
 
 
Þau fóru til að tala við Steve Edmundson, framkvæmtastjóra eignastýringar hjá lífeyrissjóði opinberra starfsmanna í Nevada. Þetta var í meira lagi undarleg umfjöllun þar sem RÚV kolféll á prófinu.Engin - alls engin! - tilraun var gerð til rannsóknar af neinu tagi, en skellt fram fullyrðingum sem áhorfendum var greinilega ætlað að taka þannig að íslenskir lífeyrissjóðir væru illa reknir en þessi ameríski sjóður vel rekinn.
 
Ástæðan? Jú, Steve Edmundson útvistar allri eignastýringu síns sjóðs en hjá íslensku sjóðunum starfa tugir, jafnvel hundruð manna við eignastýringu. Ekki virðist hafa hvarflað að hinum knáa \"rannsóknarblaðamanni\" Sigríði Halldórsdóttur að spyrja þeirrar eindföldu spurningar: Hvað kostar útvistunin? Þaðan af síður virðist hafa hvarflað að þessu sjálfumglaða rannsóknarteymi RÚV að glugga í ársreikninga þessa lífeyrissjóð opinberra starfsmanna í Nevada. 
 
Til að létta RÚV fólkinu álagið af að fletta upp staðreyndum um þennan ameríska lífeyrissjóð opinberra starsmanna í Nevada má benda á að ársreikningar sjóðsins eru aðgengilegir á netinu. Sá nýjasti er fyrir fjárhagssártið sem lauk 30. júní 2017. Þar kemur fram að kostnaður við að útvista eignastýringunni á þvi fjárhagsári var liðlega 5,2 milljarðar króna (miðað við gengi í dag). Svo bætist við ráðgjöf um eignastýringu upp á tæpar 150 milljónir.
 
 
Kveikur gaf í skyn að þetta kostaði bara ekkert hjá blessuðum kallinum Edmundson sem býr í hjólhýsahverfi, keyrir eldgamlan minivan og hefur með sér nesti í vinnuna!Hér er svo ársreikningur NVPERS sjóðsins (tölurnar eru á bls. 57): https://www.nvpers.org/public/publications/FY17CAFR.pdf
Rtá