Svandís Svavarsdóttir braut lög að mati Umboðsmanns – breytir engu því hún er hafin yfir lög að eigin mati

Á Íslandi gilda margvíslegir lagabálkar sem eiga það sammerkt að íbúum landsins og fyrirtækjum sem hér starfa er uppálagt að fara eftir þessum gildandi lögum. Það á við um alla, háa sem lága, konur og karla, ríka og fátæka, jafnt fólk sem fyrirtæki. Svandís Svavarsdóttir ráðherra lítur hins vegar þannig á að hún þurfi ekki að fara að lögum. Það kom skýrt fram núna þegar Umboðsmaður Alþingis birti úrskurð sinn um að hún hefði brotið lög þegar hún stöðvaði hvalveiðar fyrirvaralaust í fyrrasumar. Svandís hefur áður brotið lög og þá lýsti hún því yfir að ekkert væri athugavert við lögbrot hennar í embætti umhverfisráðherra enda væri einungis um að ræða pólitískan ágreining milli sín og Hæstaréttar. Vitanlega átti hún þá að segja af sér ráðherradómi vegna afbrota sinna en það gerði hún ekki. Og komst upp með það, sat sem fastast á ráðherrastóli sínum á meðan fylgið hrundi áfram af vinstri stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem streittist við að sitja að völdum út kjörtímabilið – lifandi dauð.

Það sama er að gerast núna. Fylgi ríkisstjórnarinnar minnkar frá mánuði til mánaðar. Stjórnin sjálf og ráðherrar hennar eru rúnir trausti. Einungis er beðið eftir staðfestu dánarvottorði enda hangir ríkisstjórnin á bláþræði og gæti sprungið hvaða dag sem er úr þessu. Líklegra er þó að ráðherrar stjórnarinnar reyni að treina sér valdasetuna í nokkra mánuði til viðbótar því að flestir þeirra gera sér ljóst að langt mun líða þar til þeir komast aftur að kjötkötlunum að kosningum loknum. Flestir þeirra munu aldrei eiga afturkvæmt að ríkisstjórnarborðinu.

Flestir áttu von á að úrskurður Umboðsmanns Alþingis yrði með þeim hætti sem nú hefur verið upplýst. Það þurfti ekki löglærða menn til að sjá að Svandís braut lög, reglur, hefðir og það sem kallað er meðalhófsregla í opinberri stjórnsýslu. Hún þverbraut þetta allt í frekjukasti á síðastliðnu sumri með fullum stuðningi og vitneskju Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri grænna. Með framkomu sinni uppskar Svandís mikla reiði forystumanna samstarfsflokkanna í ríkisstjórninni og vitanlega einnig þeirra sem urðu fyrir barðinu á framkomu hennar. Talið er að stjórnin hefði getað sprungið vegna þessa máls síðastliðið sumar. En það gerðist ekki. Sjálfstæðismenn og Framsókn létu þetta yfir sig ganga og fylgið hélt áfram að reitast af ríkisstjórnarflokkunum, ekki síst Vinstri grænum sem mælast með 5-6 prósenta stuðning og eru við það að falla út af Alþingi ef niðurstaða kosninga verður í samræmi við allar skoðanakannanir sem gerðar hafa verið hér á landi síðustu 12 mánuði.

Fram hefur komið að Hvalur hf., sem varð fyrir mestu hnjaski vegna ákvörðunar Svandísar, hyggst nú krefja ríkið skaðabóta vegna framferðis ráðherrans. Það er að vonum en viðbúið er að það geti hjálpað Vinstri grænum pólitískt. Þjóðin er á móti hvalveiðum. Kjósendur fyrirlíta ómannúðlegar drápsaðferðir hvalveiðimanna og Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf., er orðinn tákngervingur þessara ógeðfelldu vinnubragða. Því meira sem hann kemur fram í fjölmiðlum vegna þessa mála vænkast hagur Svandísar og Vinstri grænna þrátt fyrir lögbrot og óboðleg vinnubrögð.

Pólitískt er hér um snúna stöðu að ræða. Ef Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn krefjast brottrekstrar Svandísar úr ríkisstjórninni vegna þessa máls þá munu þær stöllur Katrín og Svandís snúa málinu upp í samúð með lögbrjótnum vegna þess að hér sé um dýraverndunarmál að ræða sem lögð séu á vogarskálar gegn græðgi og yfirgangi Hvals hf. og Kristjáns Loftssonar sem njóta lítillar samúðar meðal kjósenda.

Katrín og Svandís munu reyna að nýta sér þetta mál til að lyfta flokki sínum upp af grafarbakkanum sem þær hafa smám saman komið honum á.

Samstarfsflokkarnir í ríkisstjórninni verða að gæta sín á að ganga ekki í gildru þeirra. Vilji þeir slíta stjórnarsamstarfinu áður en allt fylgi þeirra er uppurið  skortir alls ekki málin sem unnt er að láta steyta á því ágreiningur er milli stjórnarflokkanna um fjölmörg stórmál. 

Hvalamálið er ekkert stórmál heldur vandræðalegt smámál sem þó er merkilegt fyrir það að enn á ný er staðfest að Svandís Svavarsdóttir ráðherra í þessari ríkisstjórn telur sig hafna yfir lög landsins. Það út af fyrir sig er stórmerkilegt.

- Ólafur Arnarson