Benni í bílabúð benna fer á kostum hjá jóni g.: klikkaðasti jeppaleiðangur sögunnar!

Benedikt Eyjólfsson, eigandi og framkvæmdastjóri Bílabúðar Benna, fer á kostum í nýjasta viðskiptaþætti Jóns G. sem sýndur var í gærkvöldi og verður endursýndur í dag á tveggja tíma fresti. Á meðal þess sem þeir ræða er „klikkaðasti jeppaleiðangur Íslandssögunnar“ eins og Benni nefnir hann. Þetta var seint í apríl 1991 þegar 29 manna leiðangri á 12 jeppum á vegum Bílabúðar Benna tókst að koma bíl upp á hæsta tind Íslands, Hvannadalshnjúk.  „Þetta verður aldrei gert aftur,“ segir Benni í viðtalinu. „Nú eru umhverfismál í brennidepli. Þess vegna get ég sagt hróðugur að við skildum ekki eftir eitt einasta snitti á jöklinum, ekki svo mikið sem einn bréfamiða.“

Þáttinn í heild sinni má nálgast hér: