Tíu breytingar í lífi björns inga frá því hann setti tappann í flöskuna

Fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson setti tappann í flöskuna fyrir fimm mánuðum síðan og segist hann rétt aðeins vera farinn að átta sig á kostum þess að vera allsgáður.

„Ég er enn bara nýnemi á þessari braut og á mikið eftir ólært, en gleðst yfir hverjum degi þar sem maður er besta útgáfan af sjálfum sér en ekki sú versta, betri faðir barnanna sinna, getur sinnt fjölskyldunni betur, ræktað líkama og sál í stað þess að deyfa tilfinningarnar og fresta því sem þarf að takast á við. Aukinheldur kynnist maður allt í einu fjölda fólks í sömu sporum sem biður í sameiningu æðri mátt um aðstoð við að ná tökum á eigin lífi,“ segir Björn Ingi á Facebook síðu sinni.

Listaði Björn Ingi einnig niður topp tíu atriðin sem hann hefur upplifað síðan hann varð edrú og mælir hann eindregið með því að hætta að drekka. Segir hann það ákvörðun sem hver og einn þarf að taka fyrir sjálfan sig en að sú ákvörðun hafi breytt lífi hans.

Topp tíu atriði yfir það sem Björn hefur upplifað: 

1. Betra jafnvægi, andlegt og líkamlega.

2. Kvíðinn er horfinn.

3. Maður vaknar í sama standi og þegar maður sofnar og þarf ekki að raða óljósum minningabrotum saman með tilheyrandi vanlíðan.

4. Maður er aldrei þunnur.

5. Maður er alltaf til staðar.

6. Börnin hafa eignast miklu betri föður.

7. Peningasparnaðurinn er mikill.

8. Líkamleg heilsa hefur snarbatnað.

9. Útlit og líðan tekur stakkaskiptum.

10. Maður er hreinskilinn í samskiptum og einlægur.