Veitingastaðir jamie olivers á leið í þrot

Veitingahúsakeðja sjónvarpskokksins Jamie Oliver er á leið í þrot. Endurskoðendafyrirtækið KPMG hefur nú tekið yfir rekstur á öllum veitingastöðum í hans eigu. Oliver segist vera virkilega sár og leiður yfir þessum fréttum og óskar starfsfólki sínu góðs gengis. Alls vinna um 1300 manns á veitingastöðunum. 

Jamie Oliver opnaði sinn fyrsta veitingastað árið 2008. Ásamt því byrjaði hann að gefa út blaðið Jamie, en hann hætti útgáfu á því árið 2017. Segist Jamie hafa sett nærri 470 milljónir króna í fyrirtækið til að styðja við reksturinn en það dugði ekki til. Hefur Jamie Oliver verið að gera matreiðslusjónvarpsþætti í yfir 20 ár ásamt því að hafa gefið út tugi matreiðslubóka.

Ekki er vitað hvaða áhrif þetta muni hafa á rekstur veitingastaðar Jamie Olivers hér á landi.