Breskur blaðamaður, Emma Brockes, missti viðmælanda sinn af sverara taginu út úr miðju viðtali eftir að í brýnu sló milli hennar og stórleikarans Roberts De Niro.
Emma starfar fyrir Radio Times og kemur fram í frétt Independent að meint neikvæð ályktun um hvernig leikarinn kæmist handan sjálfstýringar (auto pilot) þegar hann væri að leika hafi orðið upphaf ógæfunnar. Fyrst bað leikarinn blaðamanninn að slökkva á upptökutækinu og vildi ráða ferðinni. Að sögn Emmu Brockes, stökk hann svo um, æddi um, sagðist hættur í viðtalinu vegna neikvæðni blaðamannsins og rauk svo á dyr eftir orðaskipti.
Gefið er í skyn í fréttinni að De Niro sé alræmdur fyrir að vera tregur til viðtala og hafi verið þunglyndislegur þegar hann fór í viðtalið í þeim tilgangi að „plögga“ nýja mynd, The Intern. Blaðakonan telur De Niro hafa talað niður til sín þegar hann kallaði hana „darling“ eða „vinu“, skömmu áður en viðtalinu lauk. Emma segist hafa samúð með De Niro að þurfa að ganga í gegnum hönnuð og yfirborðskennd viðtöl vegna nýju bíómyndarinnar. Það réttlæti þó ekki framkomu hans.