Búist er við 40.000 nýjum innflytjendum til Þýskalands í dag og á morgun. Samkvæmt frétt BBC sem höfð er eftir embættismönnum er von á flestum þeirra í gegnum Munchen í suððurhluta landsins en álitamál er samkvæmt frétt BBC meðal heimamanna hve vel Þýskaland er í stakk búið til að taka á móti svo miklum fjölda, aðra helgina í röð. Þýska ríkisstjórnin lýsti yfir í ágúst að ríkið myndi taka við flóttafólki frá Sýrlandi án tillits til þess innan hvaða sambandsríkis ESB flóttamennirnir kæmu fyrst til.
Ekki liggur enn fyrir hve mörgum sýrlenskum flóttamönnum ríkisstjórn Íslands veitir heimild til að taka á móti. Mikill áhugi er meðal almennings á að leggja lið. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sagði í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld að það væri ábyrgðarlaust að ætla sér að taka á móti fleiri flóttamönnum en innviðir landsins og þjónusta gæfu tilefni til. 22 þingmenn og þar á meðal formaður VG, Katrín Jakobsdóttir, vilja taka á móti 500 flóttamönnum hingað til lands.