Taldi íslending horfa of mikið á sig

 

Hinn alþjóðlegi bridgeheimur nötrar og skelfur í kjölfar þess að fyrrum sveitarfélagar ísraelsku spilaranna Lotan Fisher og Ron Schwartz hafa sakað þá tvo um yfirgripsmikið og langvarandi svindl við bridgeborðið. Einn íslensku heimsmeistaranna frá Yokohama telur að stóraukið fé í greininni hafi skapað nýjan hvata fyrir svindl. Málið sé áfall fyrir bridgeíþróttina.

Á erlendum bridgevefsíðum hafa verið sýnd skjáskot af myndböndum sem benda til þess að ísraelsku spilararnir hafi svindlað meðal annars með því að leggja spil sín á borðið samkvæmt kerfi sem miðaði að ólöglegum og leyndum upplýsingum. Þannig hafi það haft ákveðna merkingu og sagt sögu um gæði litar ef spil var lagt lóðrétt á spilaborð. Ef spil var lagt lárétt var merkingin önnur. Svindl getur skipt sköpum um hvort sigur vinnst á stórmóti þar sem mikið verðlauna- og styrktarfé getur verið undir.

Íslandsvinurinn Boye Brogeland, tíðum gestur frá Noregi á bridgestórmótum hér innanlands, braut ísinn með ásökun sinni gagnvart ísraelska parinu. Hann spilaði í sveit með Fisher og Schwartz en því samstarfi er nú lokið. Fyrrum sveitarfélagar hinna meintu svindlara hafa afsalað sér titlum sem þeir hafa unnið á grunni þess að óhreint mjöl hafi verið í pokahorninu. Rannsókn stendur yfir í málinu. Ísraelska parið hefur brugðist við með hótun um málsókn og krefst gríðarhárra skaðabóta.

 Aðalsteinn Jörgensen, einn íslensku heimsmeistaranna sem unnu Bermúdaskálina sællar minningar í Yokohama árið 1991, segir í samtali við Hringbraut að bridgespilurum sé brugðið vegna hins meinta svindls. Málið sé áfall fyrir íþróttina og mikilvægt sé að ísraelska parið verði útilokað frá keppni á mótum. „Það er ljóst að töluverðir peningar eru komnir inn í þetta sport. Þannig hefur myndast nýr hvati fyrir svindl. Áður var þetta mest megnis spurning um heiður,“ segir Aðalsteinn.

 Heimsmeistarinn geðþekki rifjar upp að árið 2012 hafi hann og makker hans, Bjarni H. Einarsson fyrir hönd íslenska bridgelandsliðsins í opnum flokki spilað við Ísraelana á stórmóti. Hafi Fisher í miðri viðureign kallað til keppnisstjóra og kvartað undan því að Bjarni horfði of mikið á sig. „Maður hugsar í dag, var hann með slæma samvisku? Hver kallar á keppnisstjóra bara vegna þess að einhver að horfa á mann?“

 Bridge er slagaspil sem snýst um að læra sagnkerfi og lýsa fyrir makker með þöglum hætti 13 spila hendi með sagnkortum. Mega upplýsingar pars sem spila saman aldrei vera meiri en sem nemur vitneskju andstæðinga um upplýsingagjöf. Leiðirnar til að lýsa spilunum eru bundnar af ströngum reglum. Markmiðið er að sagnir leiði til besta samnings í samræmi við styrk spilanna og eru spilapörin ýmist í vörn eða sókn. Öll pör glíma við sömu hendur á stórmótum þannig að tilviljun ræðir því ekki hvort góð spil eða slök eru gefin heldur samanburður við árangur annarra spilara sem byggist að mestu á stærðfræðilegum ályktunum, líkindareikningi, úthaldi, talningu og minni en einnig stundum sálfræði.

 Nokkrir íslenskir bridgespilarar hafa haslað sér völl í atvinnumennsku í Bandaríkjunum þar sem íþróttin nýtur mikillar virðingar meðal efnafólks. Rætt er um að Bill Gates sæki alþjóðlegt bridgestórmót á Íslandi, jafnvel næsta ár.