Sýrlensk börn og konur verði sprengd

Formaður utanríkismálanefndar danska þingsins vill að vesturveldin geri átökin í Sýrlandi að alvöru stríði með því að sprengja uppkonur og börn í Sýrlandi.

Þetta kemur fram á visir.is en ummælin eru sögð hafa fallið á sunnudag.

Søren Espersen, formaður utanríkismálanefndar danska þingsins og þingmaður Danska þjóðarflokksins, er sagður þeirrar skoðunar að vesturveldin stundi hernað sinn af of mikilli „herramennsku.“

Mikil reiði ríkir í Danmörku vegna hryðjuverkanna í París en fáir hafa gengið eins langt og Espersen í opinberum ummælum:


„Við erum ekki að sprengja svæði þar sem óbreyttir borgarar halda til.“ „En við þurfum að byrja að gera það. Íslamska ríkið felur sig á bak við konur og börn í þorpum og bæjum og þeir vita að við erum of miklir herramenn til að sprengja þau í loft upp. Því þarf að linna,“ hefur visir.is eftir formanni utanríkismálanefndar á danskri sjónvarpsstöð.