Svetlana Alexievich hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2015. Greint var frá þessu í morgun en Svetlana er hvítrússneskur rannsóknarblaðamaður og rithöfundur, þekktust fyrir blaðamennsku. Hún er fyrsti blaðamaðurinn sem fær bókmenntaverðlaun Nóbels.
Stíll Svetlönu hefur sumpart rambað á skilum hins skapandi og staðreynda. Að verðlaunin falli henni í skaut er sagt brjóta blað. Hún er fjórtánda konan frá upphafi sem hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels.
Svetlana er 67 ára, þekktust fyrir umfjöllun frá Afganistan og Tsjernóbyl.