Nýjar myndir af plútó

Geimfarið New Horizons þaut fram hjá dvergreikistjörnunni Plútó um hádegisbil að íslenskum tíma í gær. Í nótt gaf geimfarið frá sér merki sem gaf til kynna að allur búnaður farsins væri í lagi. 

New Horizons var skotið á loft í janúar 2006 og hafði því verið nær tíu ár á leiðinni á áfangastað. Vísindamenn höfðu beðið spenntir eftir að fá nýjar upplýsingar um þessa ystu reikistjörnu sólarkerfis okkar, en svo virðist sem allur búnaður hafi komist í heilu lagi fram hjá henni á leiðangri sínum.

Ekkert geimfar hefur komist svo nálægt Plútó áður. Leiðangurinn er því talinn marka tímamót og fögnuðu vísindamenn ákaft í höfuðstöðvum NASA og víðar þegar farið sendi frá sér sín fyrstu gögn í gær. Þar á meðal var þessi einstaka mynd af dvergreikistjörnunni sem sjá má hér að ofan, en athygli vekur að Plútó er rauðleitari en vísindamenn grunaði og minnir að mörgu leyti á reikistjörnuna Mars, líkt og The Telegraph bendir á.