Allnokkrar líkur eru á því að þegar maður pantar vörur á netinu fái maður sent meira magn af lofti en af vörunni sjálfri. Þetta er ótvíræð niðurstaða í úttekt sem norski blaðamaðurinn Martin Skjæraasen gerði í pistliá ríkismiðlinum NRK í gær. Þar bar hann saman hlutfall tóms lofts í pakkningum utan af ýmsum vörum frá nokkrum vefverslunum og var þar ætíð af nógu lofti að taka.
Skjæraasen reiknaðist til dæmis svo til að í kassa utan af sólgleraugum frá Zalando hafi 78 prósent verið tómt loft. Loft tók 82 prósent rýmisins í kassa utan af heyrnartólum frá Elkjøp og heil 97 prósent í kassa fyrir músamottu frá Komplett.no. Í kassa utan af tesíu frá Søstrene Grene nam loftið áttatíu og átta prósentum.
Við eftirgrennslan í pakkningarverksmiðju Komplett.nos fékk Skjæraasen þau svör að nauðsynlegt væri að pakka dýrum vörum í einkennalausa pappakassa til þess að vekja ekki athygli þjófa. Þá sé nauðsynlegt að geta vafið vörunum inn í frauð- eða bóluplast til þess að þær verði ekki fyrir skemmdum fyrir afhendingu.
Í pistli sínum setur Skjæraasen spurningamerki við þá venju að stinga hverri vöru inn í stóran pakkakassa við sendingu. Bendir hann bæði á að þetta útheimti fleiri flugferðir og því meiri kolefnisútblástur við sendinguna og að höggva verði fleiri tré til þess að framleiða allan pappann.
„Ef maður byggi til kassa úr þessu öllu og staflaði þeim upp gæti maður byggt turn sem næði alla leið til sólarinnar,“ skrifar Skjæraasen.