Bandaríkin verða áfram þátttakendur í starfi NATO. Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna James Mattis sagði þetta á fundi varnarmálaráðherra bandalagsins í Brussel. Hann lagði áherslu á að öll hin ríki NATO standi við skuldbindingar sínar um framlög til varnarmála.
Innlimun Krímskagans og átök í Úkraínu sagði James Mattis varnarmálaráðherra vera áminningar um hver eru markmið leiðtoga Rússlands í nánustu framtíð. Forseti Rússlands Vladimir Putin leitast við að veikja NATO.
Vafalaust gera Rússar sér vonir um að þvinga Bandaríkin að lokum til að hverfa á brott úr Evrópu með herlið sitt . Þannig eru í stuttu máli helstu fyrirætlanir Rússlands erlendis.
Blákaldar staðreyndir heimsmálanna - þar á meðal herstyrkur NATO - verður að sannfæra forseta Rússlands um að heppilegast sé að útkljá hættuleg ágreiningaatriði í Evrópu með samningum. Að minnsta kosti í bili.
Nágrannar Rússlands eiga að velja þá stefnu að standa saman og vera fastir fyrir.
Nánar á www.euronews.com og www.france24.com