Myndir staðfesta hryllinginn

Rússar hafa gert fjölda loftárása á ISIS-sveitir í Sýrlandi, annan daginn í röð. Þetta kemur fram í erlendum fréttamiðlun en þar hefur verið vitnað til bandarískra leyniþjónustumanna um að Rússar hafi gert um 20 árásir á mikilvæg vígi ISIS-manna í Sýrlandi.

Rússar segjast beita sér gegn hryðjuverkjum hvar sem er í heiminum. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að stórveldin tvö muni senn hefja viðræður til að reyna að koma í veg fyrir árekstra í þeirri viðleitni að frelsa sýrlenska borgara undan hryllingi harðlínuaflanna.

45.000 ljósmyndum hefur nú verið smyglað burt úr Sýrlandi. Hermt er að á myndunum sé staðfest að hátt í 7000 stjórnarandstæðingar hafi verið pyntaðir og teknir af lífi undir stjórn ISIS.