Með því að takmarka sjónvarpsáhorf við tvær klukkustundir á dag getur fólk frestað eða komið í veg fyrir ýmsa heilsubresti, ef marka má nýja rannsókn.
Rannsakendur við Háskólann í Glasgow fylgdust með nærri 500 þúsund einstaklingum á aldrinum 37 til 73 ára á tólf ára tímabili milli áranna 2006 og 2018.
Að sögn þeirra leiddu niðurstöður í ljós að þeir sem gláptu daglega í tvo klukkutíma eða minna voru með minnstar líkur á því að fá krabbamein eða hjarta- og æðasjúkdóma.
Náði rannsóknin ekki einungis til hefðbundins sjónvarpsáhorfs heldur einnig áhorfs á síma.
Benda niðurstöðurnar til þess að ef allir þátttakendur hefðu takmarkað áhorf sitt við tvær klukkustundir, hefði mögulega verið hægt að koma í veg fyrir eða fresta 5,62 prósentum allra dauðsfalla og 7,97 prósent dauðsfalla af völdum hjarta- og æðasjúkdóma.