Fyrrum foringi í Írska lýðveldishernum (IRA) Martin Mc Guinness er látinn 65 ára að aldri úr arfgengum hjartasjúkdómi. Hann varð ungur að árum foringi í vopnaðri hryðjuverkasveit IRA enda þótti hann til foringja fæddur. Martin McGuinness var efins um lýðræði myndi að lokum tryggja sameiningu Norður Írlands og Írska lýðveldisins Eire. Vopnvald og ofbeldi IRA væri því eina lausnin.
En honum snérist hugur. Hann varð þar með einn lykilmaðurinn í friðarviðræðum á Norður-Írlandi. Friðarsamkomulagið sem kennt er við Föstudaginn langa heldur en þá. En vopnaðar vígasveitir mótmælenda og katólika börðust árum saman og mannfalla var gríðarlegt í vígasveitum beggja og fjöldi almennra borgara fórst í hryðjuverjaárásum beggja vígasveita.