„Everton getur nú staðfest að leikmaður liðsins hefur verið leystur frá störfum tímabundið vegna lögreglurannsóknar. Félagið mun halda áfram að vinna með lögregluyfirvöldum og aðstoða við rannsóknina. Félagið mun ekki gefa frá sér frekari yfirlýsingar að svo stöddu,“ segir í yfirlýsingu frá Everton.
Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum í kvöld var leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar handtekinn á föstudaginn grunaður um kynferðisbrot gegn barni, greint er frá þessu í bresku fjölmiðlunum Daily Mail, The Sun og The Mirror. Ekki kemur fram í yfirlýsingu Everton hvort málin tengjast.
Samkvæmt breskum fjölmiðlum er leikmaðurinn 31 árs gamall. Þá segir the Daily Mail leikmanninn vera giftan og spila reglulega með landsliði í heimalandi sínu. Ekki er greint frá nafni hans að svo stöddu.
Samkvæmt heimildarmanni The Mirror er málið „gríðarlegt áfall“ fyrir félagið.
Lögreglan í Manchester borg rannsakar málið og fór í húsleitir heima hjá leikmanninum vegna rannsóknarinnar. Leikmanninum var sleppt gegn tryggingu á föstudaginn.