Öll dönsk tónlist verður fjarlægð af dönsku útgáfunni af Youtube fyrir miðnætti í dag.
Ástæðan er sú að Google, sem á Youtube og Koda sem heldur utan um réttindi tónskálda og lagahöfunda í Danmörku hafa ekki komist að samkomulagi um notkun á danskri tónlist á miðlinum.
Vegna þessa er nú þegar byrjað að fjarlægja danska tónlist af YouTube og frá miðnætti í kvöld verður ekki hægt að nálgast neina danska tónlist.
Samningur rann út í apríl síðastliðinn.
Verið að vinna í sameiginlegum norrænum samning fyrir Finnland, Noreg og Danmörku sem kemur í stað einstakra samninga. Danir fengu tímabundna framlengingu á samning sínum í apríl sem rennur út á morgun. Þess vegna verður tónlist Kim Larsen, Olsen bræðra, Medinu, Rasmus Seebach og fleiri ástsæla tónlistarmanna ótiltæk á Yotube frá miðnætti.