Hjartagæskan er frétt vikunnar

Ritstjórn Truthdig, erlends vefjar, hefur valið Íslendingana sem buðust til að hýsa 10.000 sýrlenska flóttamenn sem frétt vikunnar. Í fyrirsögn vefjarins segir: „Truthdiggers of the Week: Icelanders Who Opened Their Hearts and Homes to Syrian Refugees.“

Vefurinn velur vikulega frétt vikunnar og leitast þá við að finna einstaklinga eða hópa sem skora á vald og koma áleiðis mikilvægum upplýsingum . Til grundvallar viðurkenningunni er að á sama tíma og íslensk stjórnvöld hafi búið sig undir að taka aðeins á móti 50 sýrlenskum flóttamönnum hafi fólkið í landinu tekið málin í sínar hendur. Fjöldi fólks hafi boðið fram aðstoð sína. Niðurstaðan sé að 10.000 Íslendingar hafi boðið fram heimili sín sem skjól fyrir flóttamenn. Lesa má fjölda tilvitnana frá íslenskum almenningi sem bauð fram aðstoð sína á facebook-síðunni: Kæra Eygló Harðardóttir í fréttinni á vefnum thruthdig.com.

Hringbraut sagði frá því að Magnús Bernhardsson fræðimaður og sögukennari í í Massachussets í Bandaríkjunum, segist aldrei á 20 ára búsetuferli utan landsteinanna hafa upplifað eins jákvæð viðbrögð gagnvart Íslandi og síðustu daga vegna sama máls, sem hafi verið áberandi í fréttum ytra. Doktor Magnús, sem er með gráðu í sögu Miðausturlanda frá Yale, segist aldrei hafa fengið eins jákvæð viðbrögð frá fólki úti í heimi út af nokkru máli en framtaki Íslendinganna nú.