Hægt að koma í veg fyrir voðaverkin

 

Fyrir þremur árum lögðu Rússar til leið í friðarsamkomulagi sem hefði e.t.v. leitt til þess að forseti Sýrlands, Assad, hefði hrakist frá völdum. Guardian hefur eftir Martti Ahtisari, rithöfundi og fyrrum forseta Finna, að vestræn ríki hafi misst af tækifærinu. Tugþúsundir borgara hafa síðan misst lífið vegna ógnarstjórnar í Sýrlandi. Milljónir manna hafa hrakist frá landinu. Um ræðir stærstu flóttamannakrísu heims frá  Seinni heimsstyrjöld.

Ahtisaari leiddi viðræður innan Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í febrúar árið 2012. Segir hann að Vitaly Churkin, fulltrúi Rússa, hafi lagt fram áætlun í þremur liðum um að Assad myndi stíga til hliðar vegna friðarviðræðna milli meirihlutans og minnihlutans í Sýrlandi. Hann segir að Bandaríkin, Frakkland og Bretland hafi á þeim tíma verið sannfærð um að Assad myndi sjálfkrafa hrekjast frá völdum þannig að ekkert varð úr áætluninni. Síðan hefur ISIS vaxið ásmegin. Sífelld voðaverk og eyðilegging Sýrlands eru staðreynd þar sem tekist er á um ábyrgð alþjóðasamfélagsins.

„Glatað tækifæri,“ hefur Guardian eftir Ahtisaari og bætir við: „Við hefðum átt að koma í veg fyrir þetta sjálfskapaða hneyksli, þennan hafsjó flóttamanna í Evrópu.“ Við erum að borga þær skuldir sem við stofnuðum sjálf til.“

Stríðið í Sýrlandi hefur varað í fjögur og hálft ár með stuðningi Rússa við Assad. Ahtisaari vann Nóbelsverðlaun árið 2008 vegna friðarmála og þykir hafa mikinn trúverðugleika sem heimildarmaður.

Sjá frétt Guardian hér.