Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði Í Twitter færslu í gær að Washington D.C, höfuðborg Bandaríkjanna hefði verið öruggast staður í heiminum kvöldið áður.
Íslendingurinn Guðni Halldórsson svaraði þessari færslu forsetans: Hann hafi greinilega aldrei heimsótt Nýbýlaveginn í Kópavogi. Nýbýlavegurinn væri alltaf öruggur staður til að vera á. Hinsvegar væri stundum hættulegt að vera í Hamraborginni Í Kópavogi vegna þess að þar væri innandyra benssínstöð. Guðni á við hina frægu þjónustustöð Olís, sem er staðsett undir Hambraborg 12 ásamt bílastæðum.
Það er spurning hvort að Trump svari Guðna og þeir geti náð sátt um hvort Washington eða Nýbýlavegurinn sé í raun öruggari staður þessa dagana.
Er Nýbýlavegurinn öruggasti staður í heiminum?
Twitter/skjáskot