Fullveldi og flóttamenn

Bandamenn Ameríku horfa til þess hvað Bandaríkin aðhafast á alþjóðavettvangi vegna þess fordæmis sem athafnir Bandaríkjanna setja og líka vegna þess hvers Bandaríkin kunna að óska eða jafnvel krefjast af bandamönnum sínum. 

Nú hefur ríkisstjórn  Bandaríkjanna sagt sig frá stuðningi við ábyrgð gagnvart flóttamönnum.  Þetta er byggt á þeim rökum að þessi yfirlýsing samræmist hvorki sjálfsákvörðunarréti né ekki fullveldi Bandaríkjanna. 

Bandaríkin sögðu sig fyrr á þessu ári frá samkomulagi um loftslagsmál.  Svo kölluðu Parísarsamkomulagi. 

Þá hafa bandarískir stjórnarerindrekar hvatt bandamenn Bandaríkjanna til að rjúfa öll tengsl við Norður-Kóreu. 

Þar á meðal öll viðskipti.  Og þá einkum formleg stjórnmálatengsl.

Hvað íslenskum og bandarískum embættismönnum hefur farið á milli um þessi þrjú mál er ekki vitað en ljóst má að sem eðlilegur hluti af tvíhliða samskiptum mun þau bera á góma.  Einkum stjórnmálasamband Íslands og Norður-Kóreu.    

 [email protected]