Er rennandi vatn á mars?

 

 

Það er ekki nóg með að fjöldi Íslendinga sjái heiminn og eigin tilvist í nýju ljósi eftir blóðmánann í nótt heldur hefur Bandaríska geimferðastofnunin NASA boðað til fréttamannafundar síðdegis í dag og heitir stórtíðindum.

Grunur leikur á að stofnunin muni afhjúpa gögn sem bendi til að rennandi vatn sé að finna á Mars. Ef fljótandi vatn finnst á plánetunni eykur það mjög líkurnar á sjálfbærni lífs úti í geimnum. Áður hafa fundist sannanir fyrir að vatn hafi í eina tíð verið að finna á rauðu plánetunni eins og Mars er gjarnan kölluð.

Ekkert hefur enn lekið út um efni fréttamannafundarins en  Guardian tengir fundinn við rennandi vatn.