Bretar og brexit

Fyrir tvöhundruð þrjátíu og þremur dögum ákváðu Breta í þjóðaratkvæðagreiðslu að ganga út úr Evrópusambandinu (ESB).

Margt hefur gerst frá því þessi niðurstaða fékkst.

Þetta hefur gerst. Nýr forsætisráðherra tók við stjórnartaumunum. Ný ríkisstjórn stýrir nú Stóra-Bretlandi. Nýtt tungutak er brúkað og einnig nýtt slangurmál.

Og margt hefur ekki gerst. Stóra-Bretland til að mynda er enn innan ESB.

Þess er vænst að Theresa May forsætisráðherra gangsetji viðæður við ESB um útgönguna þá og þegar með því að tilkynna formlega að Bretar virkji ákvæði 50.greinar Lissabon-sáttmálans um útgöngu úr sambandinu. 

Þar með telja Bretar fullvíst að þeir „ræsi“ samningaviðræður við ESB.

En hvað gera Bretar ef ESB neitar að semja?  

ESB ríkin eru minnug orða Margaret Thatcher forsætistisráðherra Breta forðum þegar hún sagði að það er erfiðar að semja við mann sem á sér draum en við mann sem á sér markmið.

Ekkert er hættulegra en sá draumur Breta að ESB vilji semja við þá um útgöngu úr sambandinu.

Nánar www.openeurope.org.uk og www.bloomberg.com