Börn sem koma úr fjölskyldum trúaðra mælast með minni góðvild í hjarta og eru refsiglaðari en börn sem koma frá heimilum þar sem engin trúarbrögð eru heiðruð. Þetta sýnir ný rannsókn sem kynnt er í Guardian.
Ein niðurstaða rannsóknarinnar er að trúleysi sé siðferðislegt. Rannsóknin byggir á afrakstri fræðimanna við sjö háskóla víðsvegar í heiminum sem báru saman viðhorf og siðferði, kristinna, múslima og trúlausra.
Önnur niðurstaða er að eigingirni sé ríkari hjá trúuðum en trúlausum og að kristin börn hafi meira umburðarlyndi en börn frá heimilum múslima.
Niðurstaðan hefur valdið usla skv. Guardian, enda kennivald hvers ríkis oft nátengt ríkjandi trúarbrögðum.
1.200 börn tóku þátt á aldrinum 5-12 ára. Um fjórðungur var trúlaus, fjórðungur kristinnar trúar en meirihlutinn múslimsk börn.