Bólusetning gegn hpv áhrifarík í að koma í veg fyrir forstigsbreytingar leghálskrabbameins – góð þátttaka á íslandi

Niðurstöður nýrrar rannsóknar á áhrifum bólusetningar gegn HPV, human papilloma veiru, sýna að bólusetning er mjög áhrifarík til að koma í veg fyrir forstigsbreytingar leghálskrabbameins af völdum veira sem eru í bóluefninu og einnig veira sem ekki eru í bóluefninu hjá bæði bólusettum og óbólusettum einstaklingum, en í tilfelli veiranna sem eru ekki í bóluefninu er um að ræða svokallað hjarðónæmi.

Sömuleiðis fækkaði öllum HPV-sýkingum í kynfærum af völdum ofangreindra veira bæði hjá stúlkum og óbólusettum drengjum vegna hjarðónæmis. Bólusetning með fjórgildu bóluefni (Gardasil) fækkaði einnig marktækt kynfæravörtum bæði hjá bólusettum stúlkum og óbólusettum stúlkum og drengjum.

Ísland stendur vel að vígi

Þessi áhrif eru sérstaklega áberandi í þjóðfélögum þar sem þátttaka í bólusetningu er góð og margir árgangar hafa verið bólusettir. Á Íslandi hafa stúlkur verið bólusettar við 12 ára aldur frá 2011 með tvígildu bóluefni (Cervarix). Þátttaka hefur verið mjög góð hér á landi, eða um 90 prósent, sem er meira en í flestum löndum. Rannsóknir á áhrifum bólusetningarinnar á Íslandi hafa þó ekki verið gerðar.

Frá þessu er greint á vef embættis landlæknis. Þar segir að niðurstöður rannsóknarinnar séu mjög ánægjulegar og bendi til að með víðtækri bólusetningu stúlkna megi draga verulega úr líkum á leghálskrabbameini, en hér á landi greinast um 18 konur á hverju ári með leghálskrabbamein og hundruðir með alvarlegar forstigsbreytingar leghálskrabbameins.

Læknatímaritið „The Lancet“ birti þann 26. júní 2019 niðurstöður rannsóknar á áhrifum bólusetningar gegn HPV. Rannsóknin var samantekt margra rannsókna á áhrifum HPV-bólusetninga gegn forstigsbreytingum leghálskrabbameins, HPV-sýkingum í kynfærum og kynfæravörtum. Rannsóknartímabilið spannaði 8 ár frá upphaf bólusetninga og tók til bólusetninga í mörgum löndum. Að rannsókninni stóðu óháðir rannsóknaraðilar margra landa.