Biðraðir í grískum bönkum

Bankar í Grikklandi opnuðu á nýjan leik í morgun eftir að hafa verið lokaðir í þrjár vikur. Biðraðir mynduðust víða í morgun, en þrátt fyrir opnanir er starfsemi bankanna mjög skert. 

Nýjar reglur heimila Grikkjum að taka út að hámarki 420 evrur á viku, eða rúmlega 60 þúsund krónur - en hámarksúttekt hvers og eins verður um níu þúsund krónur á dag, eða 60 evrur. Þá eru gjaldeyrishöft enn við gildi í landinu og ströng skilyrði fyrir millifærslu fjár til útlanda. Enn fremur hafa verið settar hömlur á stofnun nýrra bankareikninga í landinu.