Apple skuldi 7.500 milljarða króna?

Apple er það fyrirtæki sem kemur mestum tekjum undan í skattaskjól samkvæmt nýlegri bandarískri rannsókn. Fimm hundruð stærstu fyrirtæki Bandaríkjanna skjóta undan 2.100 milljarða bandaríkjadala hagnaði fyrir utan Bandaríkin og losna með því við að greiða 620 milljarða bandaríkjadala,um 78 þúsund og fimmhundruð milljarða íslenskra króna, í skatt. Ríkisútvarpið segir frá.

Rannsóknin var gerð af tveimur samtökum, sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni. Hún leiddi í ljós að um þrír fjórðu fimm hundruð stærstu fyrirtækja Bandaríkjanna áttu dótturfyrirtæki í skattaparadísum á borð við Bermúda, Írland, Lúxemborg og Holland.

Apple er það fyrirtæki sem á mest fé í skattaskjólum, eða um 181 milljarð bandaríkjadala. Samkvæmt rannsókninni myndi fyrirtækið þá skulda 59 milljarða dala í skatt, eða tæplega 7.500 milljarða íslenskra króna sem er um 12 sinnum skatttekjur Íslands miðað við nýtt fjárlagafrumvarp.

Skýrsluritarar segja í niðurstöðum sínum að Bandaríkjaþing geti og eigi að taka hart á þeim fyrirtækjum sem flytji hagnað til skattaparadísa. Það myndi gera skattkerfið sanngjarnara, lækka halla ríkissjóðs og bæta markaðinn.