Á annað hundrað myrtir með köldu blóði

Parísarbúar, íbúar Frakklands og íbúar um allan heim eru slegnir eftir ein hræðilegustu voðaverk sem framin hafa verið í seinni tíð.

Samkvæmt erlendum fréttamiðlum virðist sem a.m.k. 120 séu látnir eftir skot- og sprengiárásir í nótt. Flestir féllu við Bataclan tónleikahöllina. 200 eru sagðir slasaðir þar af 80 alvarlega. Sjónarvottar lýsa þeim hryllingi að hafa þurft að hlaupa yfir blóðug lík í þeirri von að bjarga lífi sínu en byssumennirnir voru með öflugar vélbyssur.

Ekki liggur fyrir enn úr hvaða röðum byssumennirnir koma en Guardian, Reuters og CNN hafa eftir vitnum að árásarmennirnir hafi sagt við gísla sem þeir tóku að morðin væru framin til að hefna fyrir Hollande Frakklandsforseta og stefnu hans gagnvart Sýrlandi. Um tíma var talið að árásir væru gerðar á mörgum stöðum í einu.

Ferðaskrifstofur hafa þegar aflýst ferðum til Parísar. Í borginni mun meira og minna öll þjónusta liggja niðri í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu er ekki vitað hvort Íslendingar hafi verið meðal látinna eða særðra.

Stofnuð hefur verið facebook síða þar sem fólk er beðið um að staðfesta hvort allt sé í lagi með þá Íslendinga sem kunna að hafa verið á ferð nálægt hryðjuverkunum í nótt, slóðin er: https://www.facebook.com/safetycheck/paris_terror_attacks

Hér er hlekkur þar sem horfa má á beina útsendingu frá París, þar sem íbúar eru sagðir sem lamaðir af harmi og ótta.