Anna claessen: „mig langaði að deyja!“

„Mig langaði að deyja! Mig langaði ekki að drepa mig en mig langaði til að deyja. Ég var í kulnun. Ég missti minnið og alla orku. Ég hafði ekki löngun til að gera neitt.“

Á þessum orðum hefst pistill Önnu Claessen sem birtist á Vísi.

Þar segir Anna að hún hafi áður fengið þunglyndiskast en aldrei svona slæmt áður.

„Ég gat ekki hætt að gráta. Ég sá ekki tilganginn. Ég fann ekki fyrir væntumþykju. Ég reyndi og reyndi en ekkert gekk.Það var allt svo erfitt!“

Anna segist hafa verið með heimili, starf, fjölskyldu og vini en á sama tíma var hún dauðþreytt á líkama og sál.

„Ég fór til sálfræðings sem benti mér á að leita til heimilislæknis, fékk lyf og beiðni a Virk og fékk þar greiningu að það þurfti að senda mig á hvíta bandið. 12 mánaða bið. Þau útskrifuðu mig samt. Engin ráð, enginn bæklingur með lausnum, ekkert! Það á aldrei að senda fólk tómhent heim!!!!!“

Segist Anna vera þrautseig og því hafi hún leitað sér ráða hjá Geðhjálp, Stígamótum, Hlutverkasetrinu og á fleiri staði þar til hún fann Hugarafl.

„Hugarafl bjargaði lífi mínu. Enginn biðtími, ekki leyfi eða tilvísun til að komast inn. Ég fékk lánaða von. Ég fékk að vera mannvera, finna til og það var í lagi.“

Anna segir að það sé hægt að ná bata og að það þurfi ekki að vera á þessum stað að eilífu.

„Kulnun var þess vegna það besta sem kom fyrir mig. Ég fann lausnir. Ég fann fólk eins og mig. Ég fékk vonina og trúna, ást og umhyggju. Ég fékk orku. Í kulnun var ég bara með x mikla orku og ég þurfti að líta á líf mitt og sjá hvað gaf og tók frá mér orku og fór loksins að lifa lífinu út frá mér og búa mér til mitt draumalíf.“

Í dag er alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn og verður honum fagnað í Salnum klukkan 17:00 með fyrirlestrum og skemmtiatriðum.

Anna þakkar öllum þeim sem vinna við geðheilbrigðismál og sérstaklega öllum þeim samtökum sem bjarga mannslífum með því að vera til.

„Ef þér líður illa, mundu
Þú ert ekki einn / Þú ert ekki ein
Þú ert elskaður / Þú ert elskuð
Það koma betri tímar!“