Hafliði Ragnarsson bakari og súkkulaðimeistari í Mosfellsbakarí hefur skapað sér ríka sérstöðu á íslenskum matvörumarkaði með handgerðum páskaeggjum sínum. Sjálfur er hann sérmenntaður í súkkulaði og fór ítarlega í þau fræði sín í þættinum Atvinnulífið á Hringbraut í gærkvöld, en þar var hann gestur Sigurðar K. Kolbeinssonar og má vænta þess að áhorfendur hafi sleikt út um við að horfa á herlegheitin sem blöstu við þeim á skjánum, enda sást þar vel að handunninn egg eru listgrein fremur en iðnaður.
Hafliði segir súkkulaði ekki sama og súkkulaði. Jarðræktarskilyrði séu lykilatriði í framleiðslu súkkulaðibauna við miðbaug; sjálf baunin ráði úrslitum um gæði súkkulaðsins, styrk þess, bragð og áferð - og allt þetta og raunar miklu meira til verði að hafa í huga þegar ráðist sé í gerð handgerðra páskaeggja af öllum stærðum.
Horfðu á Atvinnulífið með Hafliða Ragnarssyni í Mosfellsbakarí með því að smella hér: