Ólöf Nordal verður bankastjóri og formaður bankastjórnar Seðlabankans, samkvæmt því sem Ólafur Sívertsen heldur fram í pistli hér á Hringbraut.is.
Hann leitar skýringa á áformum ríkisstjórnarinnar um að fjölga bankastjórum í þrjá, þvert á það sem tíðkast víðast hvar á Vesturlöndum. Ólafur telur að skýringin sé einfaldlega sú að ríkisstjórnarflokkarnir ætli að herða pólitísk tök sín á Seðlabanka Íslands áður en stjórnin lætur af völdum eftir tvö ár.
Hann telur að Framsókn fái hina tvo og talar um að Seðlabankinn hafi verið notaður sem "vistunarúrræði" fyrir uppgjafastjórnmálamenn.