Upplýsingu takk, ekki þöggun

Ofbeldi þrífst í skjóli leyndar. Ofbeldismenn hræðast upplýsingu - og raunar dagsljósið allt. Myrkraverkin sín vilja þeir geta stundað óáreittir án þess að nokkuð heyrist af því eða fréttist.

Í þessu ljósi ber að leiðbeina lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum og snúa honum frá villu síns vegar. Hann vill enga umfjöllun um kynferðisglæpi í Eyjum. Hann vill þagga niður alla umræðu um einn ógeðslegasta glæp samtímans þar sem níðst er á ungum konum sem bíða þess seint eða aldrei bætur.

Öll þöggun í þessa veru heldur skömminni hjá brotaþolanum.

Öll umræða og barátta síðustu missera hefur snúist um að skila skömminni til gerandans.

Tilmæli lögreglustjórans í Eyjum til gæslumanna, starfsmanna neyðarmóttöku og sjúkraflutningamanna um að þegja um kynferðisglæpi í Eyjum um helgina eru forneskja. Þau eru til vitnis um fáheyrða þröngsýni opinbers starfsmanns sem kann ekki að fara með völd sín.

Innanríkisráðherra ber að koma vitinu fyrir þennan undirmann sinn - og kynna fyrir honum nútímann.

Leyndarhyggja myrkra miðalda er liðin á Íslandi. Löngu liðin.