Þyrnirósarsvefninum er að ljúka

\"Við sem samfélag höfum smitast rosalega hratt af sorpblindu. Við sjáum ekki skítinn,\" segir Einar Bárðarson, stofnandi Plokk á Íslandi í nýjasta hefti Mannlífs, en hann hefur vakið Íslendinga til umhugsunar um sóðaskapinn sem hefur viðgengist hér á landi. Og landsmenn hafa hlýtt kallinu. Þúsundum saman fara þeir nú um þéttbýli jafnt sem dreifbýli og hirða upp rusl í tonnatali.