Kaupmaðurinn Margrét Kristmannsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka verslunar og þjónustu gerir framtíð ungs fólks á Íslandi að umfjöllunarefni í nýjum pistli sínum á hringbraut.is: "Við ungu kynslóðinni blasir við mjög einföld sviðsmynd sem sýnir að valið stendur á milli þess að taka verðtryggð fasteignalán með +/- 4% vöxtum eða óverðtryggð lán með +/- 8% vöxtum. Og þetta eru afleitir valkostir. Ég hef stundum sagt að þetta sé val um að láta lúberja sig eða rota, " skrifar Margrét, full svekkt á því að börn hennar og barnabörn muni þurfa að upplifa sama ruglið og hún.
"Það allra versta," segir hún "er að það er ekkert í kortunum sem sýnir að þetta sé að fara að breytast. Engin ný peningastefna - engin framtíðarsýn - bara haldið áfram á sömu braut ár eftir ár eftir ár." Hún kveður fast að orði: "Unga fólkið á ekki að sætta sig við þessa valkosti - heldur gera kröfu um að því standi til boða sömu lánakjör og í nágrannalöndunum," og segir að unga fólkið eigi að segja þvert nei við þeim valkosti að það eitt að eignast heimili kosti áratuga ánauð.
Og Margrét klikkir út með þeim orðum að unga fólkið eigi "einfaldlega að taka málin í sínar hendur og ýta í burtu kynslóðinni sem hefur reynst ofviða að gera lífskjörin hér eins og þau best geta orðið."