Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og einn helsti pistlahöfundur á hringbraut.is brýnir Illuga Gunnarsson menntamálaráðherra í nýjum skrifum sínum á vefnum í dag og hvetur hann til fara að orðum Vigdísar Finnbogadóttur sem hún setti fram í umtöluðu viðtali á Hringbraut í síðasta mánuði. Þorsteinn segir að viðtalið við forsetann fyrrverandi, "sem er þó í hugum margra meira verandi en fyrrverandi," eins og hann orðar það hafi eðlilega vakið athygli þar sem það hafi bæði verið "einkar persónulegt en um leið fullt af góðum ábendingum."
Svo skrifar Þorsteinn: "Vigdís rifjaði meðal margs annars upp í þessu viðtali árin í Menntaskólanum. Þar sagðist hún hafa verið ein í strákahópi, eða gáfumannagengi eins og hún nefndi hann, sem kom saman til að velta fyrir sér heimspekilegum efnum. Hún sagðist sakna þess að við ættum enga heimspekihefð. Síðan lét hún þá skoðun í ljós að þörf væri á því að kenna meiri heimspeki í skólum. Hún hélt því fram að við hefðum gagn af því að rökræða. Og svo spurði hún: „Af hverju lærum við það ekki?“
Að vísu er það svo að ekki er unnt að gefa öllu því sem góðu fólki flýgur í hug aukið rými í námsskrá. En fram hjá hinu verður ekki horft að Vigdís víkur hér að þeirri undirstöðu menningar og lýðræðis sem fengið hefur heldur lítið pláss við hlið sérhæfðari námsgreina. Gæti samt sem áður ekki verið nokkur auðnubót í því að gera þjóðina hæfari til rökræðu," spyr Þorsteinn í nýjum pistli sínum í dag.
Taktu mark á orðum vigdísar!
Fleiri fréttir
Nýjast