Segir Pírata ekkert veggfóður í borgarstjórninni

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, kom flokkssystrum sínum í borgarstjórn til varnar í Silfrinu í dag. Tilefni orðaskiptanna var umræða um væntanlegar borgarstjórnarkosningar seinna á árinu og pistil Kolbrúnar Bergþórsdóttur í Fréttablaðinu í síðustu viku, þar sem Kolbrún velti því upp að samstarfsflokkar Samfylkingarinnar í borgarstjórn hefðu glatað sérstöðu sinni og runnið saman í eina heild.

Aðspurð hvort Píratar og aðrir samstarfsflokkar í meirihlutanum hefðu færst út í bakgrunn og orðið „veggfóður“ í samstarfinu svaraði Þórhildur Sunna neitandi. „Mér finnst við alls ekki hafa verið í bakgrunninum í þessu stjórnarsamstarfi. Þvert á móti hefur Dóra Björt – og Sigurborg Ósk áður en hún lét af störfum – hefur verið mjög dugleg að koma fram fyrir þennan meirihluta og kynna það sem Píratar hafa lagt áherslu á í sveitastjórnarmálunum, sem er lýðræðisumbyltingin í borginni og líka stafræna umbyltingin.

Þórhildur bætti því við að stafræna umbyltingin hefði gjörbreytt viðhorfi fólks sem sækir um fjárhagsaðstoð. „Hún hefur gjörsamlega umbylt því kerfi, gert það einfaldara og þægilegra fyrir fólk og fækkað þeim vinnustundum sem þurfa að fara í þau mál. Við höfum tekið föstum tökum mál sem hafa verið umdeild í umræðunni. Þar hefur Dóra Björt og okkar fólk verið duglegt að ganga fram fyrir skjöldu, svara þeirri gagnrýni sem kemur og bregðast við, til dæmis með því að umbreyta gjörvöllu stjórnkerfi borgarinnar í kjölfar braggamálsins.“

Þórhildur Sunna er ekki sú fyrsta sem hefur lýst sig ósammála pistlinum, en Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreisnar birti á dögunum Facebook-færslu þar sem hún benti á framlög Viðreisnar innan borgarstjórnarsamstarfsins og vísaði því á bug að hún eða stjórnarflokkar utan gamla fjórflokksins væru „litlaus“.