Þórdís Lóa oddviti Viðreisnar í Reykjavík, formaður borgarráðs og staðgengill borgarstjóra spyr á Facebook-síðu sinni hvort hún sé litlaust tilbrigði í skugga Dags.
Ástæða færslu Þórdísar er leiðari Kolbrúnar Bergþórsdóttir leiðarahöfund Fréttablaðsins í gær.
Þar spurði hún hvort ekki væri best að kjósa Dag í borgarstjórnarkosningum í vor þar sem hinir flokkarnir sem mynda meirihluta þar væru hvort eð er litlausir og daugir í skugga hins skínandi borgarstjóra.
„Ég hef gaman af svona pistlum og ég hló upphátt nokkrum sinnum því litlaus og dauf eru ekki lýsingarorð sem ég myndi hvorki nota yfir sjálfa mig, sem fékk þau burtfararorð úr Seljaskóla hér forðum að ég væri kraftmikil stelpa en kjaftfor og erfið, né um kollega mína Líf Magneudóttir og Dóru Björt en saman leiðum við frábæran hóp borgarfulltrúa,“ segir Þórdís í færslu sinni á Facebook.
Að sögn Þórdísar var hún hugsi eftir lesturinn.
„Það er greinilegt að við kunnum ekki að hafa marga flokka sem vinna saman sem einn. Og er þetta ekki einum of mikil leiðtogadýrkun? Þarf alltaf bara að vera einn flokkur eða leiðtogi? Reyndin er sú í dag að völd fjórflokksins eru liðin undir lok og við verðum að venjast þeirri tilhugsun að fjölflokka meirihlutar eru framtíðin. Samstarf og málamiðlanir eru það sem koma skal, því verðum við að venjast,“ segir Þórdís.
Veruleikinn kalli á að saman vinni nokkrir leiðtogar sem allir verði að fá sitt svið og nefnir Þórdís meirihluta borgarinnar sem gott dæmi um það.
„Við unnum gott samkomulag í upphafi sem var byggt á afar skýrri sameiginlegri sýn á framtíð og þróun borgarinnar. Það þýðir ekki að við séum öll eins og sammála um allt, það er af og frá og það var einmitt það sem Dagur sagði í umræddum fréttatíma “Þetta eru ólíkir flokkar en það er styrkur.“
Við ræðum opinskátt saman um þau málefni sem aðgreina okkur og komumst að sameiginlegri niðurstöðu. Við erum, hvert og eitt í meirihlutanum, dugleg að ýta á þau málefni sem við brennum fyrir og minna á sjónarmið ef við teljum að eitthvað hafi gleymst,“ segir Þórdís.
Hún bætir við að Viðreisn hafi verið óþreytandi að benda á mikilvægi einkaframtaksins og atvinnulífsins, ýti á eftir því að bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla verði brúað, leiti leiða til að bæta þjónustu borgarinnar með stafrænum skrefum, bæta skipulag og ferla.
„Það er vissulega verkefni framundan að draga fram sérstöðu hvers og eins flokks en það verður ekki erfitt og er í raun alveg skýrt í dag ef fólk opnar augun fyrir því. Opna augun og hlusta er kannski lykilþáttur í þessu öllu. Opnum augun fyrir því að hér eru margir flokkar með mismunandi áherslur. Hlustum á fullrúa flokkana með opnum hug en reynum ekki alltaf að troða öllu sem þeir segja í fyrirframgefna mynd fjórflokksins eða leiðtogadýrkun tuttugustu aldarinnar,“ segir Þórdís að lokum.